17.10.2008 | 15:09
Íslendingur flýr frá Rússlandi eftir slysaskot.
Manni frýs hugur af því að heyra Rússland, byssa og flúði. Og auðvitað viljum við að hún komist heim til föðurslandsins og það sem fyrst. En bíðum nú aðeins. Fyrir skömmu kom upp atvik hérna þar sem erlendur maður varð á að keyra á dreng í Reykjanesbæ og flúði af slysstað. Svo flúði hann af landi og þá eflaust í fang föðurlands síns. Uppi urðu reiðar raddir og margir með morð í huga. Síðan hefur fjölskylda þessa drengs þurft að sætta sig við að aldrei munu stjórnvöld hafi í hári mannsins og þau aldrei fá réttlæti. Ég man hvað ég var reið og ekki bara út í ökumanninn.
En núna blasir við okkur að íslendingur veldur slysi en flýr svo staðinn heldur en að standa vörð um nafn sitt og þjóðerni. Og einmitt núna þar sem við leytum hjálp þeirra. Lýsir þetta ástandinu sem ríkir hér á landi og hvað verið er að segja um okkur???? Við völdum skaða en flýjum vetvang og hrópum jafnvel yfir okkur að við erum fórnarlömbin. ( samber bretum).
Allur skaði er sættanlegur ef gengið er rétt að borðum og menn játi á sig brot. Hvað ef Rússland biður okkar stjórnvöld um að senda stúlkuna til baka til að standa réttarhöld??? En eins og fréttin segir er ekkert mál komið fyrir alþjóðardeild ríkislögreglunar og kannski er þetta bara eitthvað rugl. Kannski hefur Gordon Brown búið þetta til svo að Rússarnir hugsi sig tvisvar um að lána okkur pening.
Ég vona að það sé ekkert til í þessu. En ónotanlega setur þetta strik í allt sem maður er að lesa þessa dagana. Erum við ekki jafn ábyrg fyrir okkar gerðum eins og aðrar þjóðir ???
|
Íslenskur skiptinemi sagður eftirlýstur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.9.2008 | 18:25
Gamlir hippar og konur þeirra....fólk um 60
Endilega farið inn á lynkinn hér fyrir neðan..... fyndið hvernig lífið ....hits you in the arsssss hehe
http://www.newsday.com:80/news/opinion/ny-walt-babyboomers-blurb,0,1036393.blurb
best að kopí og peista eða bara ýta á linkinn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2008 | 12:24
Syni mínum hótað lífláti !!!
Maður hótar að sprengja tvær sprengjur í göngunni !!!
Þegar ég hélt á syni mínu nýfæddum fór ég með bæn og bað um að hann yrði heilbrigður, góður, hugulsamur, hugrakkur og athafnasamur í lífi sínu. Aldrei datt mér í hug að biðja um að hann yrði ekki samkynhneigður. En ég fékk bæn mína uppfylta því hann er allt sem ég bað um. En svo fól Guð mér verkefni. Hann fól mér að ala upp aðra tegund af mannkyninu. Ég er mjög upp með mér yfir því, en oft græt ég líka. Sérstaklega þegar maður stendur fyrir framan huglausa manneskju sem hótar barni sínu. SÝNDU ÞIG !! Að hóta svona en fela sig svo á bak við pennann er hugleysi. Sýndu sjálfann/a þig og stattu upp fyrir skoðun þinni. Sýndu hver þú ert og þá kannski hlustum við á þig. Orð þín eru ekkert annað en rob sem þú reynir að fela. Sumir roba og það heyrist út um allt og þá líta allir við.
Sonur minn segir að þögnin sé verri og það sé betra að heyra hvað fólki finnst. Líkt og í stríðum læðist óvinurinn. Ég græt stundum ein heima hjá mér yfir ummræðum, brandörum og þessum orðum, : mér er sama .....EKKI vera sama um þessi mál. Kynntu þér málin og stattu svo upp og segðu skoðun þína. Engin skoðun er röng ef hún er sögð frá lærðu máli.
Ég vona að þetta séu tóm orð og að gangan verði skemmtileg, að fólk komi til að styðja sinn málstað, að þeim finnist þau standa jafnfætis þessu fólki þ.e. samkynhneigðum. Gerum þessa göngu að stærstu göngu sem um getur og sýnum þessum huglausa hvar við stöndum.
Til Huglausa : Næst þegar þú hótar syni mínum sem og öðrum samkynhneigðum vona ég að þú hafir hugrekki til að sýna þig og leyfa fólki að ræða við þig. Ekki læðast um eins og óvinurinn sem um fjallar hér að ofan. Megi svo Guð sýna þér miskunarsemi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2008 | 11:07
Hommar og Rednecks taki saman höndum,
þeir eru jafn misskildir en eiga jafnan rétt á sér. Báðir aðilar tala opinskátt um skoðanir sínar og vinna jöfnum höndum að því að sanna sig sem virkir menn í þjóðfélaginu. Hvort við köllum þetta fordómar eða ekki er að jöfnu okkar mál. Skrifandi er hlynntur báðum hópum og virði þá að vettfangi. Málið er hvað við gerum við okkar skoðanir og hvernig framkomu við veljum í lífinu. Að púa að fólki er dónalegt og myndi ekki vera samþykkt ef hommar púuðu á redneckana.
Skrifandi er ekki sammála Gilla og hvet hann til að læra betur að tjá sig í framtíðinni. Hann í einni setningu setur niður á báða hópa og svo uppliftir hann sjálfum sér í tvígang. Hann hefur engann talent nema ef við teljum kjaftinn á honum talent. Hann segir í öllum viðtölum að hann sé í hjómsveit en kann ekkert á hljómtæki og syngur ekki á sviði. Mér hefur verið sagt af traustum aðila að hljómborðið sem hann sýnist spila á, er ekki tengt við neitt rafmagn ? Hann er sem sé ekki pluggaður neinstaðar. Segir margt um manninn.
En ég er ekki hér til að fordæma hann frekar en aðra. En hann fór með rangt mál við báða hópa. Hestamenn teljast ekki rednecks, heldur eru þetta menn sem njóta þess að ríða hestum og gera úr því list. Rednecks eru fáfróðir menn sem búa í fjallahéruðum bandaríkja og eru kenndir við þá frægu setningu : you must be a redneck !! If you use tincans for your christmas decorations : you must be a redneck. If you play on an electric piano, that is not plugged in: you must be a redneck. No pun intented.
Hommar eru menn sem lifa við erfiðar aðstæður og eru á milli tanna manna um allann heim. No punn intended. Þeir eru sagðir hafa vissa takta og virðast kvenlegir með meiru. Og er það mjög vinsælt hjá gagnkyndhneigðum mönnum að leika þá hvort sem í kvikmyndum eða upp á sviði. Einnig eru gamanþættir fullir af sketsum þar sem gagnkynhneigðir menn skaka sér við hvorn annan og eru blygðunar lausir í þessum leikjum sínum. T.d spaugstofan, stelpurnar, strákarnir og lengi mætti telja. En þetta finnst mönnum allt í lagi og sitja stífir að horfa á.
Ég hef alltaf verið hlynnt því að fólk frá öllum sviðum mannkynns fái að tjá sig, njóta sín og lifa í friði með sitt líf. Kynhneigð fólks hefur alldrei truflað mig nema það sé framkvæmt án leyfi hinns aðilans. Kynhneigð fólks segir ekkert um hvernig fólk það hefur að geyma. En ég hvet fólk ( þessa sem sýndu ósóma sinn ) til að athuga sín mál og hegða sér betur í framtíðinni. Það er alldrei að vita nema Hommarnir fylki liði og mæti á eitt hestamótið og púi á þá, þar sem þeir ríða hestum sínum.
Það er sagt að Hestamenn greiði miklar fúlgur til að stunda sitt áhugamál.
Fólk í skemmanabransanum eyðir miklum peningum í að skemmta fólki og oft er þessu fólki ekki greitt fyrir vinnu sína. Það þykir sjálfsagt að þau skemmti okkur án gjalds þar sem það gæti fleytt þeim áfram í bransanum.
Hvort sem um er að ræða : Homma, hestamenn, leikara og fjölmiðla þá eigum við öll að gæta okkar sóma og sýna þolinmæði og skilning í öllu.
Í þessu tilviki voru báðir aðilar að skekja sig á hnakki. Peace to all and to all a good life.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 11:47
Kanski ættum við að fá mr. Bush í heimsókn, hann er góður í viðræðum.
Jæja og jæja. Búin að melta lætin síðustu dagana og hreint og beint sagt : ER EKKI Í LAGI HEIMA HJÁ ÞEIM. Og þá meina ég krakkarnir sem létu eins og fábjánar, kastandi eggjum og öðru í lögregluna. Ég vona að foreldrar þessa krakka hafi tekið til handa og rætt við viðkomendur, er þau komu heim úr skólanum og öðrum menningarlegum stöðum. (aldur er ekki talinn hér) Ég t.d. hefði spurt minn krakka (aldur ekki málið) hvort hann / hún væri að læra þetta í skólanum eða vinnunni, og hver stefna hans/hennar er í lífinu. Nasista búningurinn setti punktinn yfir....ok er þeim ekki kennt hvað þessi búningur stendur fyrir og hvaða skömm það er að klæðast honum. Hvar voru svo Sturli og hinir í þessu öllu. Voru þeir kannski í kaffi inn á Olís? Hverjum datt í hug að hafa Sturla sem talsmaður þeirra. Ég geri ráð fyrir því að bandaríkjamenn eru að spyrja sömu spruningar: Afhverju völdum við Bush sem talsmaður okkar.
Ég er vonsvikin og mjög óánægð með landann núna og spyr hvert ætlum við okkur og hvernig ætlum við að leysa þessi vandamál sem blasa við okkur? Ætlum við kannski í stríð? Þessi menntaða þjóð sem státar sig yfir menningu, listum og FRIÐSÖMU ATTITUTI (sem við segjumst hafa). Ef ég sendi myndir frá þessum látum inn á blog í bandaríkjunum og til annara landa sem við erum alltaf að monta okkur yfir hvað við erum flott þjóð, hvað myndu þeir halda um okkur? Við boðum frið en kunnum ekki að ræða saman eða leysa mál eins lítil og að olían kosti mikið eða ekki nóg af hvíldarstöðum fyrir bílstjórana. Er þetta ekki einmitt málið sem stríðin standa fyrir? Er ekki almennt talið að Bush hafi farið í stríð einmitt yfir olíu.
Bílstjórarar veljið annan talsmann og setjist niður eins og menntaðir menn við aðra menntaða menn og komist að niðurstöðu. Lærið um þeirra stöðu í málunum. Skoðið allar hliðar ekki bara ykkar. Lærið að hlutir taka tíma og kannski eru þetta ekki mál sem leysast bara með Íslensku stjórninni. Heldur þarf kannski að fá alla ráðamenn alheims til að setjast niður og ræða málin og stöðvi stríðin. Ef ekki fyrir okkur þá fyrir næstu kynslóð. Það er ef við verðum ekki búin að kenna þeim að eina leiðin til að breyta hlutum er með stríði.
Ég vil friðsamar viðræður. Hvað villt þú ? Þessir dagar hafa ekki verið góð fyrirmynd fyrir okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



hrollvekjur
fjola